Almennir söluskilmálar
1. GILDISSVIÐ
1.1 Í almennum söluskilmálum þessum („Skilmálar“) merkir „Kaupandi“ þann aðila sem sendir inn pöntun á kaupum á vörum („Vörur“), „Sæplast“ merkir þá rekstrareiningu innan Sæplasts sem staðfestir pöntun og kemur fram sem seljandi, og „Samningur“ merkir samkomulag um sölu á Vörum milli Sæplasts og Kaupanda.
1.2 Skilmálar þessir gilda um sérhvern Samning nema um annað sé berum orðum samið skriflega af hálfu aðila.
1.3 Hafi aðilar samið skriflega um viðbótarákvæði eða frávik í pöntunarstaðfestingu, sölusamningi eða með öðrum hætti skulu viðbótar- eða fráviksákvæðin ganga framar Skilmálum þessum.
1.4 Öllum öðrum skilmálum og skilyrðum, hvort sem þau eru beint tilgreind eða undanskilin, þar á meðal stöðluðum skilmálum Kaupanda, er hafnað afdráttarlaust.
1.5 Skilmálarnir gilda um óæðri vörur, notaðar vörur eða nytjavörur („Aukavörur“), að því undanskildu að Aukavörur eru seldar í því ástandi sem þær eru („eins og þær koma fyrir“) og ber Sæplast enga ábyrgð á göllum í Aukavörum. Kaupandi viðurkennir að Sæplast veitir engar ábyrgðir á gæðum Aukavara, þar með talið en þó ekki takmarkað við að valkostur (iii) í grein 5.1 gildir ekki, og að tekið er tillit til þessa í kaupverðinu.
2. VERÐTILBOÐ, PANTANIR OG PÖNTUNARSTAÐFESTING
2.1 Öll tilboð sem Sæplast gerir Kaupanda um afhendingu á Vörum:
-
(a) byggjast á kostnaði við efni, veitur, flutning og vinnuafl sem í gildi er á þeim degi sem tilboðið er gefið út;
-
(b) eru háð Skilmálum þessum; og
-
(c) gilda í 30 daga frá dagsetningu tilboðsins nema Sæplast tilkynni um annað skriflega.
2.2 Pöntun á Vörum sem lögð er fram af Kaupanda telst tilboð um kaup á Vörum með fyrirvara um Skilmála þessa. Kaupandi skal tryggja að allar upplýsingar í pöntuninni séu tæmandi og nákvæmar í hvívetna.
2.3 Samningur telst bindandi milli aðila þegar Sæplast gefur út skriflega pöntunarstaðfestingu eða afhendir Vörurnar.
3. KAUPVERÐ, AFHENDING, SKOÐUN
3.1 Öll tilgreind verð eru án virðisaukaskatts og allra annarra skatta eða opinberra gjalda.
3.2 Vörurnar eru afhentar Frítt frá verksmiðju (Ex Works) frá starfsstöð Sæplasts eða samkvæmt því sem nánar er tilgreint á pöntunarstaðfestingu. Afhendingarskilmálar skulu, ef við á, túlkaðir í samræmi við Incoterms 2010.
3.3 Hafi engin sérstök afhendingaráætlun verið samþykkt skal afhending fara fram á þeim degi sem Sæplast staðfestir eða tilkynnir Kaupanda. Afhendingardagar eru eingöngu til viðmiðunar nema sérstaklega hafi verið samið um annað. Verði Sæplast vart við að Vörur muni afhendast síðar en áætlað var skal það tilkynna Kaupanda um það án ótilhlýðilegs dráttar.
3.4 Heimilt er að afhenda Vörurnar í áföngum.
3.5 Hvers kyns krafa vegna tafa takmarkast í öllum tilvikum (i) í samræmi við grein 7 og (ii) við tafir sem teljast verulegar.
3.6 Kaupandi skal eins fljótt og auðið er eftir afhendingu skoða Vörurnar ítarlega í samræmi við góða venju til að ganga úr skugga um að Vörurnar séu í samræmi við umsamið magn, gæði og tæknilýsingar.
3.7 Kaupandi skal tilkynna Sæplasti innan fimm (5) virkra daga frá afhendingu um ranga afhendingu eða galla sem uppgötvast við skoðunina.
4. ÁHÆTTA OG EIGNARRÉTTUR Á VÖRUM
4.1 Áhætta af skemmdum á eða tapi á Vörum flyst yfir á Kaupanda við afhendingu, sbr. grein 3.2.
4.2 Sæplast heldur eignarrétti að Vörunum að því marki sem lög leyfa þar til, og eignarréttur flyst yfir til Kaupanda þegar, kaupverðið hefur verið greitt að fullu.
4.3 Þar til eignarréttur á Vörunum flyst til Kaupanda skal Kaupandi:
-
(a) Tryggja að Vörurnar séu auðkenndar og merktar sem eign Sæplasts,
-
(b) Að beiðni Sæplasts veita upplýsingar um hvar Vörurnar eru niðurkomnar,
-
(c) Veita Sæplasti eða þriðja aðila á vegum Sæplasts aðgang til að skoða Vörurnar, og
-
(d) Ekki selja, veðsetja eða veðbanda Vörurnar á annan hátt án fyrirfram skriflegs samþykkis Sæplasts.
4.4 Verði vanefndir af hálfu Kaupanda er Sæplasti heimilt að taka Vörurnar til baka án fyrirvara, og skal Kaupandi leyfa eða sjá um aðgang fyrir Sæplast til að sækja Vörurnar á starfsstöð Kaupanda eða þriðja aðila.
4.5 Endurheimti Sæplast Vörurnar skal það endurgreiða Kaupanda þann hluta kaupverðsins sem Kaupandi hefur greitt, að því tilskildu að Sæplasti er heimilt að draga frá, sem bætur fyrir notkun Kaupanda á Vörunum, 20% af kaupverðinu fyrir hvert ár (eða hluta úr ári) sem liðið er frá afhendingu Varanna til Kaupanda. Hafi Kaupandi ekkert greitt á Sæplast kröfu á hendur Kaupanda sem nemur 30% af kaupverðinu.
5. ÁBYRGÐIR OG TAKMARKANIR ÁBYRGÐA
5.1 Sæplast ábyrgist að (i) félagið hafi eignarrétt og óheftan rétt til að selja Vörurnar, (ii) Vörurnar muni á afhendingardegi vera í verulegu samræmi við umsamdar tæknilýsingar samkvæmt Samningi og (iii) Vörurnar hafi verið framleiddar í venjulegum gæðum með tilliti til efna og vinnubragða.
5.2 Skylda Sæplasts til að bæta úr galla er ávallt háð því að Kaupandi hafi tilkynnt um gallann skriflega án ótilhlýðilegs dráttar og innan fimm (5) virkra daga frá því að gallinn kom í ljós. Ennfremur er sérhver krafa háð 12 mánaða ábyrgðarfresti frá afhendingardegi Varanna.
5.3 Öllum öðrum skilmálum og ábyrgðum en þeim sem að ofan greinir, hvort sem þær eru beint orðaðar eða óbeinar, lögboðnar eða aðrar, þar á meðal án takmörkunar varðandi gæði, lýsingu eða virkni, hæfni til tiltekinna nota eða söluhæfi, er hér með hafnað að því marki sem lög leyfa.
5.4 Engin trygging eða ábyrgð er veitt á vöruupplýsingum og leiðbeiningum á vefsíðu Sæplasts, í bæklingum, vörulistum, verðlistum, tækniritum eða álíka gögnum.
6. GALLAR OG KVÖRTUNARKRÖFUR
6.1 Komi í ljós að afhentar Vörur eða hluti þeirra séu gallaðar (ekki í samræmi við Samninginn) og Sæplast beri ábyrgð á gallanum, skal Sæplast bæta úr gallanum og getur að eigin vali:
-
(a) lækkað kaupverðið hlutfallslega, eða
-
(b) rift Samningnum og endurgreitt kaupverðið eða fært reikningsupphæðina Kaupanda til tekna, eftir því sem við á, eða
-
(c) gert við Vörurnar, eða
-
(d) afhent staðgönguvörur.
Sæplast skal upplýsa Kaupanda um þá aðferð sem valin er án ótilhlýðilegs dráttar.
6.2 Skylda Sæplasts til að bæta úr galla nær ekki yfir galla eða skemmdir á Vörum sem stafa af óviðeigandi meðhöndlun, rangri notkun, vanrækslu, tilraunum til viðgerða af hálfu aðila sem ekki er samþykktur af Sæplasti, eða af nokkrum öðrum orsökum en venjulegri notkun í atvinnurekstri. Ennfremur veitir eðlilegt slit Kaupanda ekki rétt til að setja fram ábyrgðarkröfur.
6.3 Kaupanda er óheimilt að endursenda gallaðar Vörur nema um það hafi náðst samkomulag við Sæplast.
6.4 Viðgerðar vörur eða staðgönguvörur skulu afhentar Kaupanda eins fljótt og við verður komið á upphaflega afhendingarstaðnum í samræmi við og með fyrirvara um Skilmála þessa.
6.5 Frekari kröfur vegna gallaðra Vara takmarkast í samræmi við ákvæði í grein 7.
7. ÁBYRGÐARTAKMARKANIR
7.1 Heildarábyrgð Sæplasts gagnvart Kaupanda, hvort sem er innan samnings (þar með talið skaðabótaábyrgð, ábyrgðaryfirlýsingar eða brot), skaðabótaskyldrar háttsemi utan samnings (þar með talið gáleysis), rangra fullyrðinga, sanngirnisreglna, brota á lögboðnum skyldum, hlutlægrar ábyrgðar eða annars samkvæmt lögum, skal:
-
(a) takmarkast við verð þeirra Vara sem tilgreint er í Samningnum og Kaupandi hefur greitt, og
-
(b) ekki ná til taps á hagnaði, viðskiptum, viðskiptavild, samningum, tekjum eða áætluðum sparnaði, kostnaðar vegna vöruinnköllunar, taps eða tjóns sem Kaupandi verður fyrir vegna málshöfðunar þriðja aðila, eða hvers kyns óbeins eða afleidds tjóns, skemmda eða kostnaðar af hvaða tagi sem er.
7.2 Sæplast undanskilur ekki né takmarkar ábyrgð vegna:
-
(a) andláts eða líkamstjóns sem hlýst af stórkostlegu gáleysi eða ásetningi félagsins; eða
-
(b) sviksamlegra eða óheiðarlegra yfirlýsinga; eða
-
(c) lögboðinnar skaðsemisábyrgðar (vöruábyrgðar) og hvers kyns annarrar ábyrgðar að því marki sem ekki er unnt að undanskilja hana eða takmarka samkvæmt lögum.
7.3 Takmarkanir á ábyrgð Sæplasts sem hér koma fram endurspeglast í umsömdu kaupverði Varanna.
7.4 Komi til þess að viðskiptavinur Kaupanda beini kröfu beint að Sæplasti skal Kaupandi skaðlausa Sæplast gagnvart sérhverju tapi eða tjóni sem af því hlýst.
8. GREIÐSLA
8.1 Greiðsla fyrir Vörur skal, nema um annað hafi verið samið, innt af hendi að fullu til Sæplasts fyrir sendingu Varanna.
8.2 Sæplasti er heimilt að innheimta vexti af öllum vanskilagreiðslum frá og með gjalddaga með vöxtum sem nema 1,5% á mánuði. Innheimtukostnaður, lögfræðikostnaður o.s.frv. greiðist af Kaupanda.
8.3 Kaupandi hefur engan rétt til skuldajafnaðar, hvorki samkvæmt lögum né á annan hátt, þar með talið en ekki takmarkað við að fresta greiðslu reikninga eða hluta þeirra.
8.4 Sé Kaupandi í vanskilum með greiðslu til Sæplasts áskilur Sæplast sér rétt til að fresta afhendingu þar til greiðsla hefur farið fram eða trygging hefur verið sett að mati Sæplasts.
8.5 Hafi Sæplast fyrir eða eftir afhendingu ástæðu til að ætla að Kaupandi muni ekki inna greiðslu af hendi á gjalddaga getur Sæplast krafist þess að Kaupandi setji fullnægjandi tryggingu. Setji Kaupandi ekki fullnægjandi tryggingu getur Sæplast rift Samningnum.
9. ÓVIÐRÁÐANLEG ATVIK (FORCE MAJEURE)
9.1 Hvorugur aðili ber ábyrgð á vanefndum við afhendingu Varanna eða annarri vanefnd á skyldum sínum samkvæmt Samningi ef og að því marki sem vanefndin stafar af atburðum (hver fyrir sig nefndur „Óviðráðanlegt atvik“) sem eru utan eðlilegra yfirráða hlutaðeigandi aðila, þar á meðal en ekki takmarkað við stríð, hryðjuverk, óeirðir, verkföll, verkbönn, útflutnings-/innflutningstakmarkanir, eignaupptöku, gjaldeyrishöft, náttúruhamfarir, eldsvoða, skort á hráefni, flutningum eða vinnuafli, vélbúnaðar-/verkfærabilanir og flutningatafir eða truflanir.
9.2 Kæmi í veg fyrir að aðili geti efnt skyldur sínar vegna Óviðráðanlegs atviks skal hann tilkynna hinum aðilanum um það eins fljótt og við verður komið. Sá aðili sem fyrir því verður skal grípa til viðeigandi ráðst
10. VERKFÆRI OG MÓT
10.1 Verkfæri eða mót sem smíðað er til framleiðslu á Vörum fyrir Kaupanda skal vera í eigu Kaupanda ef og að því marki sem Kaupandi hefur greitt fyrir verkfærið. Verkfæri sem er að fullu eða hluta í eigu Kaupanda má eingöngu nota til framleiðslu á Vörum fyrir Kaupanda.
10.2 Verkfærið skal vera áfram í starfsstöð Sæplasts þar til Kaupandi óskar eftir að það verði flutt. Kaupandi skal bera allan kostnað við flutning á verkfærinu.
10.3 Fari Kaupandi fram á flutning á verkfæri skal Kaupandi greiða allan ógreiddan hluta af verði verkfærisins til Sæplasts.
10.4 Sæplast skal geyma og viðhalda verkfærinu á fullnægjandi hátt. Hafi Kaupandi ekki pantað Vörur sem framleiddar eru með verkfærinu í tólf (12) mánuði getur Sæplast krafist þess skriflega að Kaupandi sæki verkfærið. Berist ekkert svar innan þriggja (3) mánaða frá dagsetningu beiðninnar er Sæplasti heimilt að farga verkfærinu.
11. HUGVERKARÉTTINDI („IPR“)
11.1 Ekkert í Skilmálum þessum felur í sér framsal til Kaupanda á neinum hugverkaréttindum í eigu Sæplasts, og óheimilt er að nota eða afrita slík hugverkaréttindi án fyrirfram skriflegs samþykkis.
11.2 Kaupandi skal tafarlaust vekja athygli Sæplasts á líklegu eða raunverulegu broti á hugverkaréttindum Sæplasts sem hann fær vitneskju um.
11.3 Þegar Sæplast hannar Vörurnar samkvæmt beiðni frá Kaupanda skulu öll hugverkaréttindi tengd Vörunum renna til Sæplasts, og Kaupandi samþykkir að grípa til allra aðgerða og undirrita öll gögn sem Sæplast krefst til að tryggja að slík réttindi falli til Sæplasts.
11.4 Að því marki sem Kaupandi á hugverkaréttindi að Vörunum eða einhverjum tæknilýsingum, teikningum eða öðru efni sem notað er við framleiðslu Varanna, veitir hann Sæplasti hér með slík réttindi yfir þeim hugverkaréttindum sem nauðsynleg kunna að vera svo Sæplast geti efnt skyldur sínar samkvæmt Samningnum.
11.5 Engin ábyrgð er veitt fyrir því að Vörurnar brjóti ekki í bága við hugverkaréttindi þriðja aðila.
12. TRÚNAÐUR
12.1 Hvor aðili skuldbindur sig til að fara með allar viðskiptalegar og tæknilegar upplýsingar (Trúnaðarupplýsingar) sem hann fær vitneskju um í gegnum viðskiptasambandið við hinn aðilann sem trúnaðarmál, að því tilskildu að upplýsingarnar séu ekki almenningi kunnar og séu þess eðlis að sanngjarnt sé að ætla að upplýsingarnar teljist trúnaðarmál.
12.2 Trúnaðarupplýsingar má ekki birta eða afhenda óviðkomandi þriðja aðila nema lög krefjist þess, og óheimilt er að nota þær, endurgera eða afrita nema í þeim tilgangi að efna Samninginn.
13. RIFTUN OG UPPSÖGN
13.1 Hvor aðili á rétt á að rifta Samningi með skriflegri tilkynningu til hins aðilans ef:
-
(a) hinn aðilinn gerist sekur um endurtekin eða veruleg brot á samningsbundnum skyldum sínum og er ófær um eða bætir ekki úr slíku broti innan tveggja (2) vikna frá því að brotið átti sér stað; eða
-
(b) hinn aðilinn leitar nauðasamninga eða gerir samkomulag við eða í þágu lánardrottna, eða úrskurður um greiðslustöðvun fellur á hendur honum, eða (sé um félag að ræða) lögð er fram krafa um félagsslit eða samþykkt er að slíta félaginu, eða skipaður er bústjóri, skiptastjóri eða fjárhaldsmaður yfir öllum eða hluta af eignum þess, eða aðilinn verður gjaldþrota eða ógjaldfær, eða sætir aðgerðum vegna skulda, eða gengst undir sambærilegar aðgerðir samkvæmt gildandi lögum í hvaða lögsögu sem er.
13.2 Við riftun eða uppsögn Samnings (i) skulu allar skuldir Kaupanda við Sæplast gjaldfalla þegar í stað og greiðast strax, og (ii) hvíla engar frekari skuldbindingar á Sæplasti um að afhenda Kaupanda Vörur.
14. ÝMIS ÁKVÆÐI
14.1 Gildisskerðing: Verði eitthvert ákvæði Samningsins eða annarra umsamdra skilmála ógilt, ólögmætt eða óaðfararhæft, skulu önnur ákvæði ekki verða fyrir áhrifum eða skerðast á nokkurn hátt.
14.2 Breytingar: Allar breytingar, frávik eða fyrirvarar á Samningnum skulu vera skriflegar og undirritaðar af báðum aðilum.
14.3 Eftirgjöf réttinda: Eftirgjöf aðila á réttindum vegna brots á Samningnum felur ekki í sér eftirgjöf vegna nokkurs annars fyrra eða síðara brots.
14.4 Framsal: Kaupanda er óheimilt að framselja eða færa yfir til þriðja aðila nein af réttindum sínum eða skyldum samkvæmt Samningi án fyrirfram skriflegs samþykkis Sæplasts. Sæplasti er frjálst að framselja réttindi sín samkvæmt Samningnum til þriðja aðila og, með skriflegri tilkynningu til Kaupanda, skyldur sínar samkvæmt Samningnum til dótturfélags eða systurfélags.
14.5 Lög: Samningurinn skal lúta og túlkaður í samræmi við efnisrétt þess lands þar sem Sæplast á lögheimili. Lög og reglur Samnings Sameinuðu þjóðanna um alþjóðleg lausafjárkaup (CISG) gilda ekki.
14.6 Úrlausn ágreinings: Sérhver ágreiningur, deila eða krafa sem rís út af eða í tengslum við Samning og sem ekki tekst að leysa með samkomulagi skal rekin fyrir almennum dómstólum í höfuðborg þess ríkis þar sem Sæplast hefur lögheimili, eða að ákvörðun Sæplasts, í heimaríki Kaupanda.