Treyjudagurinn 2026
Sæplast tók þátt í fyrsta Treyjudeginum á Íslandi
Starfsfólk Sæplasts á Dalvík mætti til vinnu í litríkum íþróttatreyjum föstudaginn 4. september og tók þannig þátt í Treyjudeginum. Með þátttökunni sýndi starfsfólkið börnum með krabbamein og fjölskyldum þeirra stuðning og samstöðu.
Öll í sama liði
Treyjudagurinn var haldinn í fyrsta sinn á Íslandi í ár. Að deginum stendur styrktarfélagið Börn með krabbamein og er markmiðið einfalt en mikilvægt: Að einstaklingar, vinnustaðir, skólar og íþróttafélög klæðist sinni uppáhaldstreyju og sýni þannig stuðning við börn sem glíma við krabbamein.
Treyjudagurinn var fyrst haldinn í Englandi árið 2013. Verkefnið í þeirri mynd sem það hefur tekið á sig í dag byggir á danskri fyrirmynd frá árinu 2019. Síðan hafa Noregur og Svíþjóð bæst í hópinn og átakið sameinað þúsundir einstaklinga, fyrirtækja, skóla og íþróttafélaga. Ísland bætist nú í þann öfluga hóp.
Treyjurnar geta tilheyrt ólíkum liðum, íþróttagreinum og löndum. Á þessum degi skiptir það þó engu máli með hvaða liði fólk heldur. Skilaboðin eru skýr: Á Treyjudeginum erum við öll í sama liði.
Stuðningur sem skiptir máli
Á Íslandi greinist að meðaltali eitt barn í hverjum mánuði með krabbamein. Greiningin hefur ekki aðeins áhrif á barnið sjálft heldur gjörbreytir hún einnig daglegu lífi allrar fjölskyldunnar.
Börn með krabbamein var stofnað árið 1991 og fagnar því 35 ára afmæli á þessu ári. Félagið styður krabbameinsveik börn og fjölskyldur þeirra bæði fjárhagslega og félagslega og vinnur jafnframt að réttindum þeirra gagnvart hinu opinbera.
Treyjudagurinn hjálpar til við að vekja athygli á þessu mikilvæga starfi og sýnir fjölskyldunum að þær standa ekki einar.
Það skiptir máli að fyrirtæki láti stuðning við samfélagið ekki aðeins felast í orðum. Með því að taka virkan þátt geta vinnustaðir aukið sýnileika góðra verkefna, vakið umræðu og hvatt fleiri til að leggja sitt af mörkum.
Meira:
Treyjudagurinn 2026
Matvælavinnslufyrirtæki um allan heim standa frammi fyrir auknum kröfum um að bæta öryggi, draga úr sóun, einfalda rekstur og tryggja stöðug gæði afurða. Saeplast hjálpar þeim að ná þessum markmiðum með endingargóðum, hreinlætisvænum og endurnýtanlegum lausnum fyrir meðhöndlun efnis, sem eru hannaðar með raunverulegar þarfir matvælaframleiðslu að leiðarljósi.
Strandhreinsun

Að leysa rekstraráskoranir í matvælavinnslu hjá fyrirtækjum um allan heim