Strandhreinsun 2026

Sæplast og 9. bekkur hreinsa strandlengjuna á Umhverfisdegi Dalvíkurskóla

Röskur hópur unglinga úr 9.bekk ásamt tveimur kennurum tók þátt í ruslatínslu með Sæplasti 1. júní, en þann dag var Umhverfisdagur Dalvíkurskóla.

Kristbjörn Sævaldsson og Elías Björnsson stýrðu hreinsuninni fyrir hönd Sæplasts. Þetta var 9. árið í röð sem hreinsunin fer fram. Genginn var Sandurinn frá árósum Svarfaðardalsár alla leið vestur að syðri hafnagarðinum við Sunnutún og sýnilegt rusl tínt í poka.

Verkefni sem þetta skiptir miklu máli, bæði fyrir nærumhverfið og samfélagið í heild. Með þátttöku í strandhreinsun fá unglingarnir tækifæri til að sjá með eigin augum hversu mikilvægt það er að koma í veg fyrir að plast og annar úrgangur endi í náttúrunni. Slík reynsla eykur umhverfisvitund, hvetur til ábyrgðar og sýnir að sameiginlegt átak getur haft raunveruleg áhrif.

Ruslatínsla á svæðum eins og Sandinum er einnig mikilvægur liður í því að vernda lífríki strandarinnar og halda svæðinu hreinu og fallegu fyrir íbúa, gesti og komandi kynslóðir. Það er ánægjulegt að sjá ungt fólk taka virkan þátt í verkefni sem hefur skýran tilgang og skilur eftir sig sýnilegan árangur.

Sæplast er þátttakandi í Strandhreinsun Íslands, sem er 5 ára átaksverkefni stjórnvalda í hreinsun strandlengjunnar af plasti og öðrum úrgangi. Sæplast styrkir 9.bekk með 120.000 kr framlagi í ferðasjóð fyrir þátttökuna í ár og hvetur þau til að halda áfram að ganga vel um umhverfi sitt hvar sem þau eru stödd.

Meira:

júní 2026

Strandhreinsun

Matvælavinnslufyrirtæki um allan heim standa frammi fyrir auknum kröfum um að bæta öryggi, draga úr sóun, einfalda rekstur og tryggja stöðug gæði afurða. Saeplast hjálpar þeim að ná þessum markmiðum með endingargóðum, hreinlætisvænum og endurnýtanlegum lausnum fyrir meðhöndlun efnis, sem eru hannaðar með raunverulegar þarfir matvælaframleiðslu að leiðarljósi.

júní 2026

Að leysa rekstraráskoranir í matvælavinnslu hjá fyrirtækjum um allan heim

Matvælavinnslufyrirtæki um allan heim standa frammi fyrir auknum kröfum um að bæta öryggi, draga úr sóun, einfalda rekstur og tryggja stöðug gæði afurða. Saeplast hjálpar þeim að ná þessum markmiðum með endingargóðum, hreinlætisvænum og endurnýtanlegum lausnum fyrir meðhöndlun efnis, sem eru hannaðar með raunverulegar þarfir matvælaframleiðslu að leiðarljósi.

maí 2026

Kraftur stýrðrar lotumeðhöndlunar

Fyrir veiðimenn nytjafiska, fiskvinnslur og dreifingaraðila er markmiðið skýrt: að afhenda markaðnum afurðir í hæstu mögulegu gæðum á sama tíma og framlegð er vernduð. Gæði nytjafisks ráðast þó ekki við hlið vinnslustöðvarinnar. Þau vinnast eða tapast á fyrstu klukkustundunum um borð í veiðiskipinu.