Sæplast 700 PE ker
Sterkt PE kar með lokuðum kjarna og sléttri hönnun – fullkomið fyrir kröfuhörð vinnsluumhverfi.
Description
Sæplast 700 PE – Fyrir krefjandi notkun þar sem styrkur og endingu skipta máli
Sæplast 700 PE er eitt öflugasta kar Sæplast, sérstaklega hannað til að mæta þörfum í kröfuhörðum aðstæðum eins og í kjötvinnslu, sjávarútvegi og endurvinnslu. Þríveggja PE hönnunin með lokuðum kjarna veitir framúrskarandi höggþol og vernd, jafnvel við mjög erfiða meðhöndlun og flutning.
Karið tryggir hreinlæti með sléttri hönnun og frábærri mótstöðu gegn vökva.
Athugið: Þetta kar er án tappagats, sem eykur þéttleika og hentar sérlega vel þar sem ekki er krafist vökvaútskolunar.
Helstu kostir:
-
Þríveggja PE hönnun: Hámarks styrkur og slitþol fyrir erfið vinnuskilyrði
-
Hreinlætisvænt: Lokaður kjarni dregur ekki í sig vökva – auðvelt að þrífa
-
Öruggt og hagkvæmt: Endingargott kar sem dregur úr þörf fyrir tíðar endurnýjanir
-
Fullkomið í sjálfvirk kerfi: Hentar vel í sjálfvirkri meðhöndlun og í flutningum
-
Endurvinnanlegt: Umhverfisvæn lausn framleidd úr matvælahæfu PE plasti
Additional information
| Weight | 67419994987 kg |
|---|---|
| Dimensions | 6741978579 × 674199179898 × 6741993989 cm |
Hápunktar
- Endingargott
- Fjölnota
- Auðvelt í meðhöndlun og þrifum
- Litavalkostir, merkingar- og rekjanleikavalkostir
Vörulýsing
Sæplast 700 PE – Fyrir krefjandi notkun þar sem styrkur og endingu skipta máli
Sæplast 700 PE er eitt öflugasta kar Sæplast, sérstaklega hannað til að mæta þörfum í kröfuhörðum aðstæðum eins og í kjötvinnslu, sjávarútvegi og endurvinnslu. Þríveggja PE hönnunin með lokuðum kjarna veitir framúrskarandi höggþol og vernd, jafnvel við mjög erfiða meðhöndlun og flutning.
Karið tryggir hreinlæti með sléttri hönnun og frábærri mótstöðu gegn vökva.
Athugið: Þetta kar er án tappagats, sem eykur þéttleika og hentar sérlega vel þar sem ekki er krafist vökvaútskolunar.
Helstu kostir:
-
Þríveggja PE hönnun: Hámarks styrkur og slitþol fyrir erfið vinnuskilyrði
-
Hreinlætisvænt: Lokaður kjarni dregur ekki í sig vökva – auðvelt að þrífa
-
Öruggt og hagkvæmt: Endingargott kar sem dregur úr þörf fyrir tíðar endurnýjanir
-
Fullkomið í sjálfvirk kerfi: Hentar vel í sjálfvirkri meðhöndlun og í flutningum
-
Endurvinnanlegt: Umhverfisvæn lausn framleidd úr matvælahæfu PE plasti
Sérsniðin útfærsla fyrir þitt vörumerki
Merkingar og útfærslur sem styrkja yfirsýn, skipulag og auðkenni
Frábær leið til að styrkja vörumerkið ykkar er að sérsníða Sæplast vörurnar að þörfum fyrirtækisins. Við bjóðum fjölbreyttar útfærslur á merkingum, svo sem lógó, myndrænar auðkenningar og sérmerkingar, sem gera kerin skýr, aðgreinanleg og fagleg í daglegum rekstri.
Silkiprentun
Silkiprentun er einlita djúpprentun sem er mótuð beint inn í kerin og því einstaklega endingargóð og varanleg lausn. Hjá Sæplast getum við bætt nafni viðskiptavinar, lógói eða sérmerktu tákni á kerin, sem gerir það auðþekkjanlegt í daglegri notkun.
Silkiprentun er í boði í einlitri útgáfu og hægt er að velja um litina svartan, bláan, rauðan eða hvítan.
Fræsing
Fræst merking tryggir skýra og varanlega auðkenningu. Áletrunin er ristuð beint inn í ytra byrði kersins og helst því óbreytt þrátt fyrir mikla notkun og erfiðar aðstæður.
Margir viðskiptavinir velja þessa lausn til að merkja Sæplast kerin sín með raðnúmerum, fyrirtækisheiti, verksmiðjustaðsetningu eða öðrum mikilvægum upplýsingum, sem auðveldar rekjanleika, skipulag og yfirsýn í daglegum rekstri.
"Mould-In" Grafík
„Mould-in“ grafík er varanleg leið til að auðkenna eignir viðskiptavina með fyrirtækjamerki þeirra eða sérhannaðri grafík. Merkingin er mótuð beint inn í vöruna við framleiðslu og verður því óaðskiljanlegur hluti af ílátinu.
Þessi tækni er einnig vel fallin til að styðja við markaðssetningu og styrkja vörumerki, auk þess sem hægt er að nota hana til að birta leiðbeiningar fyrir notendur, öryggismerkingar eða önnur skilaboð sem tengjast sérstakri notkun vörunnar.
Sæplast þjónusta
Við bjóðum upp á meira en ker!
Sæplast býður upp á heildstætt þjónustukerfi sem styður vörurnar okkar í gegnum allan líftíma þeirra. Með þjónustu okkar tryggjum við að iðnaðurinn fái áfram hágæða og sjálfbærar lausnir sem standast kröfur daglegs rekstrar til lengri tíma.

Reviews
There are no reviews yet.