Sæplast 160 PUR ker

A versatile insulated container providing robust protection and insulation for perishable products.

69000160

Mál
IMPERIAL
METRIC
  • Utan
  • Innan
  • Lengd:
  • NA91.5 cm
  • NA86 cm
  • Breidd:
  • NA71 cm
  • NA65 cm
  • Hæð:
  • NA45 cm
  • NA31.5 cm
  • Hæð með loki:
  • NANA
  • NANA
  • Rúmmál
  • 161 litre
Auðkenni
Meira
Rekjanleiki

RFID / Strikamerki / QR-Kóði

Meira
SKU: 69000160 Categories: , , ,

Description

Sæplast 160 PUR ker er lítið og einangrað fiskiker sem hannað er fyrir meðhöndlun á smærra magni fisks í vinnslu. Með 160 lítra hentar það vel þar sem vinna þarf með minni lotur eða þegar fiskur er fluttur á milli vinnslustöðva.

Kerið er einangrað með PUR einangrun sem hjálpar til við að viðhalda stöðugra hitastigi á hráefni. Þetta er sérstaklega mikilvægt í vinnslu þar sem fiskur er geymdur með ís eða bíður næsta vinnsluþreps.

Sæplast 160 PUR ker er framleitt með hverfissteypu sem myndar sterka og samfellda plastbyggingu. Slétt yfirborð gerir kerið auðvelt í þrifum og hentar vel í umhverfi þar sem hreinlæti er mikilvægt.

Additional information

Weight 67419994987 kg
Dimensions 6741978579 × 674199179898 × 6741993989 cm
Litir

, , , , , , ,

Reviews

There are no reviews yet.

Be the first to review “Sæplast 160 PUR ker”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Hápunktar

  • Long lasting – high insulation factor
  • Multi functional – lid options
  • Easy to handle and clean
  • Color, marking and tracking options
  • Fork lift and pallet jack use on all sides

Sæplast 160 insulated plastic container can be used for example as an ice box, fish tub, meat container, poultry and recycle container.

Vörulýsing

Sæplast 160 PUR ker er lítið og einangrað fiskiker sem hannað er fyrir meðhöndlun á smærra magni fisks í vinnslu. Með 160 lítra hentar það vel þar sem vinna þarf með minni lotur eða þegar fiskur er fluttur á milli vinnslustöðva.

Kerið er einangrað með PUR einangrun sem hjálpar til við að viðhalda stöðugra hitastigi á hráefni. Þetta er sérstaklega mikilvægt í vinnslu þar sem fiskur er geymdur með ís eða bíður næsta vinnsluþreps.

Sæplast 160 PUR ker er framleitt með hverfissteypu sem myndar sterka og samfellda plastbyggingu. Slétt yfirborð gerir kerið auðvelt í þrifum og hentar vel í umhverfi þar sem hreinlæti er mikilvægt.

Sérsniðin útfærsla fyrir þitt vörumerki

Merkingar og útfærslur sem styrkja yfirsýn, skipulag og auðkenni

Frábær leið til að styrkja vörumerkið ykkar er að sérsníða Sæplast vörurnar að þörfum fyrirtækisins. Við bjóðum fjölbreyttar útfærslur á merkingum, svo sem lógó, myndrænar auðkenningar og sérmerkingar, sem gera kerin skýr, aðgreinanleg og fagleg í daglegum rekstri.

Group 770

Silkiprentun

Silkiprentun er einlita djúpprentun sem er mótuð beint inn í kerin og því einstaklega endingargóð og varanleg lausn. Hjá Sæplast getum við bætt nafni viðskiptavinar, lógói eða sérmerktu tákni á kerin, sem gerir það auðþekkjanlegt í daglegri notkun.

Silkiprentun er í boði í einlitri útgáfu og hægt er að velja um litina svartan, bláan, rauðan eða hvítan.

Group 775

Fræsing

Fræst merking tryggir skýra og varanlega auðkenningu. Áletrunin er ristuð beint inn í ytra byrði kersins og helst því óbreytt þrátt fyrir mikla notkun og erfiðar aðstæður.

Margir viðskiptavinir velja þessa lausn til að merkja Sæplast kerin sín með raðnúmerum, fyrirtækisheiti, verksmiðjustaðsetningu eða öðrum mikilvægum upplýsingum, sem auðveldar rekjanleika, skipulag og yfirsýn í daglegum rekstri.

Group 778

"Mould-In" Grafík

„Mould-in“ grafík er varanleg leið til að auðkenna eignir viðskiptavina með fyrirtækjamerki þeirra eða sérhannaðri grafík. Merkingin er mótuð beint inn í vöruna við framleiðslu og verður því óaðskiljanlegur hluti af ílátinu.

Þessi tækni er einnig vel fallin til að styðja við markaðssetningu og styrkja vörumerki, auk þess sem hægt er að nota hana til að birta leiðbeiningar fyrir notendur, öryggismerkingar eða önnur skilaboð sem tengjast sérstakri notkun vörunnar.

Sæplast þjónusta

Við bjóðum upp á meira en ker!

Sæplast býður upp á heildstætt þjónustukerfi sem styður vörurnar okkar í gegnum allan líftíma þeirra. Með þjónustu okkar tryggjum við að iðnaðurinn fái áfram hágæða og sjálfbærar lausnir sem standast kröfur daglegs rekstrar til lengri tíma.

Keraleiga

Sæplast býður upp á kera leigu í gegnum iTUB. Fáðu nánari upplýsingar um vörur okkar og valkosti.

Sjá nánar

Rekjanleiki

Sæplast býður upp á fjölbreytta möguleika til að innleiða rekjanleika í ker. Með mismunandi lausnum er hægt að auðkenna hvert ker á skýran hátt og bæta yfirsýn, skipulag og stjórnun í daglegum rekstri.

Sjá nánar

Viðhald og viðgerðir

Sæplast PE-ker eru viðgerðarhæf allan líftíma þeirra.
Kynntu þér hvaða viðgerðarlausnir og þjónusta eru í boði.

Sjá nánar

Endurvinnsla PE kera

Kynntu þér hvernig Sæplast ker halda áfram að nýtast og skapa virði langt fram yfir hefðbundinn líftíma.

Sjá nánar

Tengdar Vörur

Aðrar traustar og endingargóðar lausnir