Pækilgrind 1000

Pækilgrind fyrir 1000 lítra ker sem heldur hráefni stöðugu í pækli

400004

Mál
IMPERIAL
METRIC
  • Utan
  • Innan
SKU: 400004 Category:

Description

Pækilgrind 1000 er grind sem er lögð ofan á hráefnið í 1000 lítra kerinu og heldur því niðri í pækli við söltun eða marineringu. Með því að tryggja að hráefnið haldist stöðugt undir yfirborði vökvans stuðlar grindin að jafnri pæklun og stöðugum gæðum í vinnsluferlinu.

Grindin er hönnuð fyrir stóra einingar og mikið magn, með einfaldri og hreinlætisvænni uppbyggingu sem auðveldar meðhöndlun og regluleg þrif í krefjandi vinnsluumhverfi.

Additional information

Weight 67419994987 kg
Dimensions 6741978579 × 674199179898 × 6741993989 cm

Reviews

There are no reviews yet.

Be the first to review “Pækilgrind 1000”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Vörulýsing

Pækilgrind 1000 er grind sem er lögð ofan á hráefnið í 1000 lítra kerinu og heldur því niðri í pækli við söltun eða marineringu. Með því að tryggja að hráefnið haldist stöðugt undir yfirborði vökvans stuðlar grindin að jafnri pæklun og stöðugum gæðum í vinnsluferlinu.

Grindin er hönnuð fyrir stóra einingar og mikið magn, með einfaldri og hreinlætisvænni uppbyggingu sem auðveldar meðhöndlun og regluleg þrif í krefjandi vinnsluumhverfi.

Sérsniðin útfærsla fyrir þitt vörumerki

Merkingar og útfærslur sem styrkja yfirsýn, skipulag og auðkenni

Frábær leið til að styrkja vörumerkið ykkar er að sérsníða Sæplast vörurnar að þörfum fyrirtækisins. Við bjóðum fjölbreyttar útfærslur á merkingum, svo sem lógó, myndrænar auðkenningar og sérmerkingar, sem gera kerin skýr, aðgreinanleg og fagleg í daglegum rekstri.

Group 770

Silkiprentun

Silkiprentun er einlita djúpprentun sem er mótuð beint inn í kerin og því einstaklega endingargóð og varanleg lausn. Hjá Sæplast getum við bætt nafni viðskiptavinar, lógói eða sérmerktu tákni á kerin, sem gerir það auðþekkjanlegt í daglegri notkun.

Silkiprentun er í boði í einlitri útgáfu og hægt er að velja um litina svartan, bláan, rauðan eða hvítan.

Group 775

Fræsing

Fræst merking tryggir skýra og varanlega auðkenningu. Áletrunin er ristuð beint inn í ytra byrði kersins og helst því óbreytt þrátt fyrir mikla notkun og erfiðar aðstæður.

Margir viðskiptavinir velja þessa lausn til að merkja Sæplast kerin sín með raðnúmerum, fyrirtækisheiti, verksmiðjustaðsetningu eða öðrum mikilvægum upplýsingum, sem auðveldar rekjanleika, skipulag og yfirsýn í daglegum rekstri.

Group 778

"Mould-In" Grafík

„Mould-in“ grafík er varanleg leið til að auðkenna eignir viðskiptavina með fyrirtækjamerki þeirra eða sérhannaðri grafík. Merkingin er mótuð beint inn í vöruna við framleiðslu og verður því óaðskiljanlegur hluti af ílátinu.

Þessi tækni er einnig vel fallin til að styðja við markaðssetningu og styrkja vörumerki, auk þess sem hægt er að nota hana til að birta leiðbeiningar fyrir notendur, öryggismerkingar eða önnur skilaboð sem tengjast sérstakri notkun vörunnar.

Sæplast þjónusta

Við bjóðum upp á meira en ker!

Sæplast býður upp á heildstætt þjónustukerfi sem styður vörurnar okkar í gegnum allan líftíma þeirra. Með þjónustu okkar tryggjum við að iðnaðurinn fái áfram hágæða og sjálfbærar lausnir sem standast kröfur daglegs rekstrar til lengri tíma.

Keraleiga

Sæplast býður upp á kera leigu í gegnum iTUB. Fáðu nánari upplýsingar um vörur okkar og valkosti.

Sjá nánar

Rekjanleiki

Sæplast býður upp á fjölbreytta möguleika til að innleiða rekjanleika í ker. Með mismunandi lausnum er hægt að auðkenna hvert ker á skýran hátt og bæta yfirsýn, skipulag og stjórnun í daglegum rekstri.

Sjá nánar

Viðhald og viðgerðir

Sæplast PE-ker eru viðgerðarhæf allan líftíma þeirra.
Kynntu þér hvaða viðgerðarlausnir og þjónusta eru í boði.

Sjá nánar

Endurvinnsla PE kera

Kynntu þér hvernig Sæplast ker halda áfram að nýtast og skapa virði langt fram yfir hefðbundinn líftíma.

Sjá nánar

Tengdar Vörur

Aðrar traustar og endingargóðar lausnir